1. Höfundarréttur

Almennir skilmálar vegna viðskipta við Heida HB Photography

1.1. Heida HB Photography (hér á eftir einnig vísað til sem „ljósmyndara“) á höfundarrétt allra ljósmynda sem teknar eru, án undantekninga.

1.2. Um höfundarrétt ljósmyndara og skilmála þessa gilda höfundalög nr. 73/1972.

1.3. Afhending/sala ljósmynda til viðskiptavinar, hvort heldur sem er á stafrænu formi eða á prenti, felur lögum samkvæmt ekki í sér framsal á höfundarrétti ljósmyndara né veitir hún heimild til breytinga á ljósmyndum á einn eða annan hátt.


2. Staðsetning myndatöku

2.1. Gert er ráð fyrir að myndatökur fari almennt fram í myndveri (stúdíói) ljósmyndara, undantekningar eru sbr. gr. 2.2.

2.2. Mögulegt er að taka myndir utandyra sé þess óskað og veður leyfir. Boðið er upp á “blandaða töku”, en þá er hluti myndanna tekinn í myndveri og hluti utandyra. Staðsetning utandyra er valfrjáls fyrir viðskiptavin, en rukkað er aukalega fyrir akstur ef staðsetningin er utan höfuðborgarinnar. Akstur er skv. verðskrá Ríkisskattstjóra.


3. Meðferð viðskiptavinar á ljósmyndum

3.1. Óheimilt er með öllu að fjarlægja vatnsmerki (e. logo) ljósmyndara af ljósmyndunum.

3.2. Öll prentun (bækur, stækkanir, framkallanir, strigar, jólakort, boðskort o.fl.) skal fara í gegnum Heida HB Photography. Ef um annars konar prentun er að ræða, t.d. á köku, skal fengið leyfi hjá ljósmyndara og gert í samráði við hann.

3.3. Viðskiptavinir mega ekki undir neinum kringumstæðum prenta sjálfir eða láta aðra en Heida HB Photography prenta fyrir sig.

3.4. Óheimilt er að taka ljósmyndir af heimasíðu eða öðrum ljósmyndasíðum ljósmyndara til notkunar. Viðskiptavinir skulu einungis notast við þær ljósmyndir sem þeir fá afhentar í netupplausn frá ljósmyndara til birtingar.

3.5. Óheimilt er að nota ljósmyndirnar í auglýsingar, ljósmyndakeppnir eða til annarrar birtingar nema með samþykki ljósmyndara fyrirfram. Um útgáfu/birtingu almennt er vísað til verðskrár Myndstefs.

3.6. Mælt er með að öll meðhöndlun á ljósmyndunum fari fram í gegnum tölvu en ekki í gegnum síma, spjaldtölvur eða önnur snjalltæki. Þetta á m.a. við þegar ljósmyndir sem afhentar voru eru sóttar af Dropboxi/Wetransfer eða ef á að setja ljósmyndir á internetið.

3.7. Óheimilt er með öllu að breyta vinnslu á ljósmyndunum á nokkurn hátt eða setja þær í gegnum snjallforrit með „effectum“ líkt og Instagram/Snapchat bjóða upp á, eða með öðrum sambærilegum hætti.

3.8. Óheimilt er að framselja eða áframsenda ljósmyndir til þriðja aðila nema með fyrirfram samþykki ljósmyndara. Ljósmyndir sem ljósmyndari hefur prentað fyrir viðskiptavin í samræmi við skilmála þessa og afhent viðskiptavini er viðskiptavini frjálst að nota sem gjafir og þess háttar.


4. Meðhöndlun ljósmyndara á ljósmyndum

4.1. Ljósmyndari og viðskiptavinur annast saman val á þeim ljósmyndum úr myndatökunni sem unnar verða og afhentar viðskiptavini (hér á eftir vísað til sem “myndaval”). Myndaval á sér helst stað innan 1-2ja vikna frá myndatöku á skrifstofu ljósmyndara (ekki í myndveri). Viðskiptavinur fær einungis afhentar þær ljósmyndir sem valdar eru. Viðskiptavinur fær undir engum kringumstæðum afhentar allar þær ljósmyndir sem ljósmyndari tekur í viðkomandi myndatöku og engar myndir eru afhentar óunnar. Um afhendingu ljósmyndanna er nánar fjallað í 5. gr. skilmála þessara.

4.2. Mögulegt er að kaupa eins margar aukamyndir og viðskiptavinur vill úr hverri myndatöku. Sjá verð fyrir aukamyndir í verðskrá.

4.3. Ljósmyndari áskilur sér rétt til að birta myndir úr myndatökum hér á vefnum og á samfélagsmiðlasíðum sínum, nema um annað sé samið.

4.4. Ljósmyndari geymir ljósmyndir sem keyptar eru í a.m.k. 2 ár frá afhendingu ljósmyndanna til öryggis fyrir viðskiptavin. Prentun ljósmyndanna skal fara fram innan 6 mánaða, en þó er alltaf hægt að bæta við prenti síðar (innan 2ja ára).

4.5. Ljósmyndun, myndvinnsla og geymsla ljósmyndanna fer fram að beiðni viðskiptavinar. Viðskiptavinur staðfestir með undirritun sinni á skilmálum þessum að hann samþykkir ljósmyndun, myndvinnslu, geymslu, birtingu, prentun og aðra vinnslu ljósmyndanna í samræmi við skilmála þessa, sbr. lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.

4.6. Öll meiriháttar myndvinnsla eins og skipti á bakgrunnum, mjög bólugrafin andlit, miklar hormónabólur á ungabörnum, samskeytingar á mörgum myndum o.s.frv. er ekki innifalin í verði tökunnar. Slík vinna kostar 15.000,- kr/klst +vsk.

5. Greiðsla og afhending

5.1. Um greiðslu fyrir myndatöku er vísað til verðskrár ljósmyndara sem finna má á heimasíðu; http://www.heidahb.com/verdskra

5.2. Myndataka telst ekki bókuð nema staðfestingargjald hafi verið greitt, það er misjafnt eftir gerð myndatöku.

5.3. Greiðsla fyrir hverja myndatöku skal fara fram strax að myndavali loknu. Staðfestingargjald gengur upp í myndatökuna, en er ´oafturkræft ef hætt er við tökuna.

5.4. Ljósmyndir og ljósmyndabækur úr myndatöku verða ekki afhentar nema heildargreiðsla hafi verið innt af hendi. Athugið að hægt er að skipta greiðslum í þrennt, en myndir eru ekki afhentar fyrr en lokagreiðsla hefur verið innt af hendi.

5.5. Ljósmyndirnar sem fylgja tökunni afhendast eingöngu í vefupplausn á stafrænu formi. Allt prent er selt aukalega.

5.6. Verðskrá, sbr. gr. 5.1, getur tekið breytingum hvenær sem er. Eftir að myndataka hefur verið bókuð gildir það verð sem verðskrá ljósmyndara sagði til um þegar staðfestingargjald var greitt.

6. Annað

6.1. Nánari upplýsingar um ljósmyndara má nálgast á heimasíðu ljósmyndara; http://www.heidahb.com/about

6.2. Viðskiptavinur samþykkir þessa skilmála með undirritun sinni. Brot á höfundarrétti ljósmyndara og skilmálum þessum varða við höfundalög, sbr. gr. 1.2, og áskilur ljósmyndari sér allan rétt vegna slíkra brota.